Öryggisstillingar
Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka
símtöl eru í notkun (svo sem útilokun,
lokaður notendahópur og fast númeraval)
kann að vera hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
>
Öryggi
og
úr eftirfarandi:
Krefjast PIN-númers eða Krefjast UPIN-
númers — til að beðið sé um PIN eða UPIN
númerið í hvert skipti sem kveikt er á
símanum. Á sumum SIM-kortum er ekki
hægt að slökkva á beiðni um númerið.
PIN2-beiðni — til að velja hvort beðið sé
um PIN2-númerið þegar tiltekinn
valkostur símans sem er varinn með PIN2-
númerinu er notaður. Á sumum SIM-
kortum er ekki hægt að slökkva á beiðni
um númerið.
Útilokunarþjónusta — til að loka fyrir
símtöl í og úr símanum (sérþjónusta).
Krafist er lykilorðs vegna útilokunar.
Fast númeraval — til að takmarka
hringd símtöl við valin símanúmer, ef SIM-
12 Gerðu símann að þínum
kortið styður valkostinn. Þegar fast
númeraval er á eru GPRS-tengingar ekki
mögulegar nema þegar textaboð eru send
um GPRS-tengingu. Í því tilviki verða
símanúmer viðtakandans og
skilaboðamiðstöðvarinnar að vera á
listanum yfir númer í föstu númeravali.
Lokaður not.hópur — til að tilgreina hóp
fólks sem hægt er að hringja í og sem
getur hringt í þig (sérþjónusta).
Öryggisstig — Til að biðja um
öryggisnúmer þegar nýju SIM-korti er
komið fyrir skaltu velja
Sími
. Veldu
Minni
til að beðið sé um öryggisnúmerið
þegar minni SIM-kortsins er valið og þú vilt
velja annað minni.
Aðgangslyklar — til að breyta
öryggisnúmerinu, PIN-, UPIN- eða PIN2-
númerinu, eða lykilorði útilokunar
Númer í notkun — til að velja hvort PIN-
eða UPIN-númerið eigi að vera virkt
Heimildavottorð eða
Notandavottorð — til að skoða lista yfir
heimilda- eða notandavottorð sem hlaðið
hefur verið niður í símann.
Sjá „Öryggi
vafra“, bls. 30.
Still. öryggiseiningar — til að skoða
upplýsingar um öryggiseiningu, virkja
PIN-beiðni fyrir öryggiseiningu eða breyta
PIN fyrir öryggiseiningu og PIN fyrir
undirskrift.
Sjá „Lykilorð“, bls. 9.