
Minniskorti komið fyrir
Aðeins skal nota microSD-kort sem Nokia
samþykkir til notkunar með þessu tæki.
Nokia styðst við viðurkennda staðla fyrir
minniskort. Þó getur verið að sum kort sé
ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki.
Ósamhæf kort geta skaðað kortið og
tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á
kortinu.
Síminn styður allt að 4 GB microSD-kort.
1 Slökktu á tækinu og fjarlægðu
bakhliðina og rafhlöðuna.
2 Ýttu á festingu minniskortsins til að
opna hana.
3 Opnaðu festinguna og settu
minniskortið í hana þannig að
snerturnar snúi inn á við.
4 Kortafestingunni er lokað og ýtt á
hana til að læsa henni.
5 Settu rafhlöðuna og bakhliðina á sinn
stað.