Rafhlaðan hlaðin
Rafhlaðan hefur þegar verið forhlaðin en
ekki er víst að hún sé fullhlaðin.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við
innstungu.
2 Tengdu hleðslutækið við tækið.
3 Þegar rafhlaðan er fullhlaðin skaltu
fyrst taka hleðslutækið úr sambandi
við tækið og síðan úr innstungunni.
Einnig er hægt að hlaða rafhlöðuna með
afli úr tölvu með USB-snúru.
1 Tengdu USB-snúruna við USB-tengi
tölvu og tækið þitt.
2 Fjarlægðu USB-snúruna þegar
rafhlaðan er fullhlaðin.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið
nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn
birtist á skjánum eða þar til hægt er að
hringja.
Hleðslutíminn veltur á því hvaða
hleðslutæki er notað. Hleðsla á BL-4U
rafhlöðu með AC-8 hleðslutæki tekur um
það bil 1 klukkustund og 30 mínútur þegar
síminn er í biðstöðu.