
Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki er
ætlað til notkunar með BL-4U rafhlöðu. Tækið er ætlað til
notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi
hleðslutækjum: AC-8. Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu
nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr
sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er
skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem
samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu
með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar
með þessu tæki. Notkun ósamþykktra rafhlaða eða
hleðslutækja getur valdið eldhættu, sprengingu, leka eða
haft aðra áhættu í för með sér.
Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni
sem er notuð. Gerð klónnar er auðkennt af einu af
eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C eða UB.
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan
hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera
nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og
tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg
tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist
á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en
rafhlaðan er fjarlægð.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu
og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna
rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur
stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni
smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.
Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C
að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr
endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri
rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið. Einkum hefur
mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni.
Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo
sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu
milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og
málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst
þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup
milli skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða
hlutnum sem veldur tengingunni.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið.
Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær skemmast. Farga skal
rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir. Skila
skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja
þeim með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, afmynda,
gata eða tæta rafhlöður. Ef rafhlaða lekur má vökvi hennar
ekki komast í snertingu við húð eða augu. Ef slíkt kemur fyrir
skal skola húð eða augu umsvifalaust með vatni, eða leita til
læknis.
Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í rafhlöðuna
sem ekki eiga að vera þar, dýfa rafhlöðunni í vatn eða aðra
vökva, eða bleyta hana.
Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða
sprenghættu, eða aðra hættu. Ef þú missir tækið eða
rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur að
Stafræn réttindi 39

rafhlaðan hafi skemmst, skaltu fara með hana til
þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram að nota
hana.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei
skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu. Geyma skal
rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.