
Stafræn réttindi
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar
réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t.
höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir
stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Með þessu
geturðu fengið aðgang að efni sem er varið með WMDRM 10,
OMA DRM 1.0, OMA DRM 1.0 læsingu fyrir framsendingu og
OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að
verja efni kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks
hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænni
réttindatækni sé endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra
endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar í tækinu.
Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun
efnis sem er verndað með öðrum gerðum stafrænna réttinda
eða notkun efnis sem ekki er verndað með stafrænum
réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir
opnunarlykill sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota
öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite til að taka
öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu.Ef notaðar
eru aðrar flutningsaðferðir er ekki víst að opnunarlyklarnir,
sem þarf að endursetja ásamt OMA DRM-vörðu efni eftir að
minni tækisins er forsniðið, verði fluttir með efninu. Einnig
gæti þurft að endursetja opnunarlyklana ef skrár í tækinu
skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt
opnunarlyklum þess ef minni tækisins er forsniðið. Einnig
gætu opnunarlyklarnir og efnið glatast ef skrár í tækinu
skemmast. Glatist opnunarlyklarnir eða efnið getur það
takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.