Að hringja
Hægt er að hringja á nokkra vegu:
Handvirkt val
Sláðu inn símanúmerið, ásamt
svæðisnúmeri, og ýttu á hringitakkann.
Til að hringja á milli landa skaltu ýta
tvisvar sinnum á takkann * til að hringja
úr landinu (táknið + kemur í stað 00), velja
landsnúmerið, svæðisnúmerið (án 0, ef
þess er þörf) og síðan símanúmerið.
Endurtaka símtal
Þegar ýtt er einu sinni á hringitakkann í
biðstöðu opnast listi með þeim
símanúmerum sem hringt hefur verið í.
Veldu númer eða nafn og ýttu á
hringitakkann.
Veldu númer frá tengiliðum
Hægt er að leita að nafni eða símanúmeri
sem hefur verið vistað í tengiliðum.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
>
Símtals-
stillingar
>
Við opnun/lokun
til að
annast símtöl með sleðanum.
Svara símtali
Ýttu á hringjatakkann eða opnaðu tækið.
Lagt á
Ýttu á hætta-takkann eða lokaðu tækinu.
Slökkt á hringitóninum
Veldu
Hljóð af
.
Hafna mótteknu símtali
Ýttu á hætta-takkann.
Hljóðstyrkur stilltur meðan á símtali
stendur
Flettu til vinstri eða hægri.