Myndsímtali komið á
Í myndsímtali er myndskeið tekið upp
með fremri myndavél símans og sýnt
viðtakanda símtalsins. Til að geta hringt
myndsímtal þarftu USIM-kort og þú þarft
að vera tengd(ur) við WCDMA-símkerfi.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um
þjónustu og áskrift fyrir myndsímtöl.
Hægt er að koma á myndsímtali við
samhæfan síma eða ISDN-tengd tæki á
milli tveggja aðila. Ekki er hægt að koma
á myndsímtölum þegar annað símtal,
myndsímtal eða gagnasímtal er í gangi.
1 Sláðu inn símanúmerið, ásamt
svæðisnúmeri, til að hefja
myndsímtal.
2 Haltu hringitakkanum inni og veldu
Valkostir
>
Myndsímtal
.
Það getur tekið dálítinn tíma að koma
á myndsímtali. Ef ekki tekst að koma
á símtalinu er spurt hvort þú viljir
hringja raddsímtal eða senda
textaskilaboð í staðinn.
3 Ýttu á hætta-takkann til að ljúka
símtalinu.