Nokia 6600 slide - Símtalsstillingar

background image

Símtalsstillingar

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Símtals-

stillingar

og úr eftirfarandi:

Símtalsflutningur — til að flytja símtöl í

annað númer (sérþjónusta). Ef til vill

geturðu ekki framsent símtöl ef einhver

valkostur sem takmarkar símtöl er virkur.

Lyklaborðssvar — til að svara

innhringingu með því að ýta stuttlega á

hvaða takka sem er, fyrir utan rofann,

vinstri og hægri valtakkana eða hætta-

takkann

Sjálfvirkt endurval — til að láta símann

hringja sjálfkrafa aftur í númer ef símtal

mistekst. Síminn reynir 10 sinnum að

hringja í númerið.

Símtal f. myndsímtal — síminn reynir

sjálfkrafa að koma á venjulegu símtali í

sama númer ef það mistókst að koma á

myndsímtali.

Skýrleiki tals — til að auka talskilning

þegar umhverfishávaði er mikill

Hraðval — til að hringja í nöfn og

símanúmer sem tengd eru

talnatökkunum 2 til 9 með því að halda

inni viðkomandi takka

Biðþjónusta símtala — til að símkerfið

láti þig vita af innhringingu meðan á öðru

símtali stendur (sérþjónusta)

Samantekt símtals — til að birta í stutta

stund upplýsingar um lengd símtala að

þeim loknum

Birta upplýs. um mig — til að þeir sem

þú hringir í sjái símanúmerið þitt

(sérþjónusta). Til að nota stillingarnar

sem þú samþykktir með þjónustuveitunni

velurðu

Stillt af netkerfi

.

Við opnun/lokun — til að stilla símann

þannig að hann svari símtali þegar þú

opnar hann og ljúki símtali þegar þú lokar

honum

Lína til að hringja — til að velja símalínu

fyrir símtöl, ef SIM-kortið þitt styður fleiri

en eina símalínu (sérþjónusta)

Samn. hreyfimynda — til að skilgreina

samnýtingu hreyfimynda