Venjulegur innsláttur texta
Ýtt er á tölutakka, 2-9, þar til viðkomandi
bókstafur birtist. Það hvaða tungumál er
valið hefur áhrif á það hvaða bókstafir
birtast.
Ef næsti stafur er á sama takka og sá sem
þú hefur slegið inn skaltu bíða þar til
bendillinn birtist og slá svo inn stafinn.
Til að fá aðgang að algengustu
greinarmerkjum og sértáknum ýtirðu á 1.
Listi yfir sérstafi er opnaður með því að ýta
á *.